03.05.2007 21:21:39 / sif...
Ég er búin að vera að velta því fyirr mér núna í nokkra daga að
blogga kanski.. Er svona búin að hálf byrja nokkrum sinnum en
allataf hætt við svo vonandi klárast þetta blogg bara
og vonandi
kommentar einhver líka.. samt eru öll komment um að ég sé ömurleg
og drusla og þess háttar vinsamlegast afþökkuð
Byrjum á byrjuninni.. Ég var að skipta yfir til sko sem þýðir
bara eitt ég er ekki með mörg símanúmer á sim kortinu.. svo
vinsamlegast á msn eða bara af siminn.is láta mig fá númerið ykkar
aftur
Númer 2.. ég er komin með gatið mitt í nefið aftur.. loksins
loksins loksins.. er búin að hálf sakna þess síðan ég tók það
fann reyndar ekki lokkin sem ég var alltaf með
sem er leiðinlegt
því hann var miklu flottari en sá sem ég er með núna.. Sif kom með
mér að fá gatið og hún vildi horfa á.. ekki mydni ég meika að horfa
á einhvern fá gat einhverstaðar
Númer 3... Það er prófavika í skólanum.. sem klárast reyndar á
morgun sko.. held uppá það annað kvöld
.. Græjurnar mínar virka
reyndar ekki ennþá.. er ennþá að spá hvað gerðist.. Sif stóð við
þær.. og svo datt hún í gólfið í hláturskasti og síðan hafa þær
ekki virkað
hehe
númer 4...Þegar ég kom heim til mín í nótt til að fara að sofa..
þá var fréttablaðið komið! Þetta er dæmi um það að maður fer of
seint að sofa... Ég ætlaði nú reyndar heim að sofa kl 2 eeen ég
tafðist smá á leiðinni heim til mín
Númer 5... Mér líður eins og grilluðum kjúkklingi núna... Var í
ljósum.. og núna veit ég hvernig kjúkklingunum á snúningsteinunum í
nóatúni líður...
Númer 6.. á morgun þegar ég er búin í prófinu ætla ég að taka
rækilega til heima hjá mér
svo ef einhvern langar að sjá hvernig
lítur út heima hjá mér þegar það er búið að taka til er velkominn á
morgun
Númer 7...Eeeen ég er að velta fyrir mér að finna kanski eithvað
að borða.. því það sem er til heima hjá mér núna er svo mikið sem
hálfur serjóskassi.. og ekki einu sinni mjólk.. það er samt til
kókómjólk.., en ég drekk hana bara ekki
Allavega.. nóg af bulli úr mér í bili.. held ég sé farin að
finna mat og svo kanski reyna að læra e-ð meira fyrir þessa
efnafræði.. Einhver sem vill kenna mér??
Yfir og út, kossar og knús